Trjáklippingar, hellulagnir og viðhald útisvæða.

SE Garðyrkja ehf er alhliða garðyrkjufyrirtæki rekið af Snjólfi Eiríkssyni skrúðgarðyrkjumeistara. Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni utanhúss fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki, með áherslu á vandaða vinnu, góða umgengni og faglegan frágang.

Hvort sem þú þarft að klippa tré, fella tré, leggja hellur eða sinna öðrum framkvæmdum í garðinum, þá leggjum við áherslu á að verkið sé unnið rétt frá byrjun.

Þjónustan okkar

  • Trjáklippingar – Við klippum tré og gróður með það að markmiði að bæta útlit, öryggi og heilbrigði garðsins.

  • Trjáfellingar – Þegar tré eru orðin of stór eða standa illa, tökum við að okkur örugga og faglega trjáfellingu.

  • Hellulagnir – Við leggjum hellur, hlöðum veggi og sinnum frágangi á stéttum, plönum og öðrum svæðum þar sem skipulag, ending og útlit skipta máli.

  • Þökulagnir og frágangur – Við tökum að okkur þökulagnir og ýmis verkefni sem lúta að snyrtilegum og endingargóðum frágangi utanhúss.

  • Leikvellir, nýsmíði og umhirða - Uppsetning leiktækja, útfærsla á fallundirlagi sem uppfyllir reglugerðir, viðhald eldri leikvalla.

  • Önnur garðvinna – Illgresiseitrun, grjóthleðslur, garðaúðun og snjómokstur eftir þörfum.

Af hverju að velja okkur

  • Fagþekking og reynsla í skrúðgarðyrkju.

  • Vönduð vinnubrögð og góður frágangur.

  • Skýr samskipti og áreiðanleg þjónusta.

  • SE Garðyrkja ehf er aðili að rammasamningi Ríkiskaupa, og uppfyllir því faglegar og fjárhagslegar kröfur sem opinberir aðilar krefjast.

  • Fyrirtækið er í Félagi Skrúðgarðyrkjumeistara og tengist Samtökum iðnaðarins.

Hafa samband


Vantar þig tilboð eða ráðgjöf? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

Sími: 897 7872
Netfang: snjolfur@snjolfur.is