Ekki einu sinni fjallarifs er alveg öruggt
Fjallarifs þar sem plágan hefur náð sér á strik.
Nokkrar af þeim trjá- og runnategundum sem hafa lengi verið vinsælar í hekk virðast nú eiga erfiðara uppdráttar vegna nýrra óværa sem herja á þær. Þar má nefna birki, brekkuvíði og viðju.
Ég er oft spurður hvaða tegund sé góð í hekk, og síðustu misseri hefur fjallarifs verið ofarlega á mínum lista. Mér hefur fundist það traustur kostur og ég hef oft mælt með því. Satt að segja hef ég jafnvel stundum sagt að það sé alveg öruggt.
En svo er auðvitað ekki. Ekkert er alveg öruggt í þessum efnum.
Nýlega sá ég stálpað hekk úr fjallarifsi í garði á Akranesi þar sem búið var að éta laufin nánast alveg af nokkrum plöntum. Eftir stóðu eiginlega bara blaðstilkarnir. Ég tók nokkrar myndir af runnanum og skaðvöldunum, sem voru þá enn að verki.
Það virðist því vera komin óværa sem leggst á fjallarifs líka. Ég mun fjalla nánar um hana í öðrum pistli innan skamms, en læt myndir fylgja hér með.
Lirfur að naga blöð, aðeins blaðstilkar skildir eftir.