Hvers vegna ekki birki

Birki hefur alltaf verið vinsælt garðtré og um leið vinsælt í formklippt hekk.  Nokkrar tegundir meindýra og sveppa hafa herjað á birkið í gegnum tíðina en lengi vel voru þær fáar og  mestmegnis meinlausar að það tók því vart að nefna. Voru það aðallega Birkisprotalús, Birkiblaðlús, Tígulvefari, Birkifeti og Haustfeti sem skemmdu birkið.

 En undanfarin ár hefur heldur betur bæst í hópinn og nú er fjöldi meindýra sem plaga birkið kominn yfir 30.  Meðal þeirra nýjustu og mest áberandi í þessum hóp eru Birkikemba, Birkiþéla og Blaðþéla. Blaðþélan var fyrst greind árið 2022.

Með þessum nýju skaðvöldum þá á birki eiginlega ekki séns lengur sem formklippt planta.  Það nær bara ekki að halda sama þrótti og áður því plágurnar herja á það nær linnulaust allt sumarið.

Hvers vegna er það? 

Jú það er vegna þess að þegar tré og runnar eru klippt í ákveðið form þá er árlega verið að klippa nýjustu og heilbrigðustu sprotana af tréinu, í ofanálag eru skilin eftir ótal mörg sár sem eru greið leið fyrir hina ýmsu sveppi til að taka sér bólfestu í tréinu og sýkja það.

Eftir sem áður á birki fullt erindi sem stakstætt garðtré, skógræktartré, eða í náttúrlegum skógi þar sem það fær að halda sínu eðlilega vaxtarlagi.

Next
Next

Nýr landnemi