Nýr landnemi
Nýr landnemi – eða að minnsta kosti ógreindur fram til þessa?
Í síðustu hugleiðingum mínum sagði ég frá lirfum sem voru að gæða sér á fjallarifsi. Stærð þeirra og það hversu rösklega þær gengu til verks varð til þess að ég taldi að þarna væru lirfur rifsþélu á ferðinni.
Ég sé rifsþélu oftast á rauðrifsi, (rifsberjarunnum) og ályktaði því sem svo að hún hefði í þetta skiptið einfaldlega ákveðið að leggja sér fjallarifs til munns.
Ég hef vanið mig á að taka myndir af skaðvöldum og öðru áhugaverðu sem ég rekst á í vinnunni. Stundum hleð ég myndunum inn á iNaturalist, sem er vettvangur þar sem bæði áhugafólk og sérfræðingar geta skráð náttúruathuganir og aðstoðað hvert annað við greiningu tegunda.
Ég setti inn nokkrar myndir og merkti þær skilmerkilega sem rifsþélu, Euura ribesii. Það taldi ég ekkert sérstaklega merkilegt.
En aldeilis ekki.
Fljótlega leiðréttu erlendir sérfræðingar greininguna og bentu mér á að þarna væri á ferðinni Euura leucotrocha, tegund sem enn hefur ekki fengið íslenskt heiti.
Að sögn þeirra sérfræðinga sem ég hef verið í sambandi við gæti þetta verið í fyrsta skipti sem tegundin er skráð á Íslandi. Ég tek að sjálfsögðu fegins hendi öllum leiðréttingum eða ábendingum hvað það varðar.
Þetta er einmitt eitt af því sem gerir vettvang á borð við iNaturalist svo gagnlegan. Maður þarf ekki alltaf að hafa rétt fyrir sér til að leggja eitthvað gagnlegt af mörkum. Stundum getur röng greining jafnvel leitt til þess að eitthvað áður óþekkt kemur í ljós.
Nánari umfjöllun um iNaturalist kemur síðar, ásamt kynningu á verkefni sem ég er með í gangi þar.
Pale Gooseberry Nematine, Euura leucotrocha.
Rifsþéla/Rifsvespa, Euura ribesii.